Mar 13, 2006
Pistill fra Sverige

Hej!!
Saelt veri folkid, ef einhver les thetta enntha. Hedan fra Svithjod er allt gott ad fretta, eg hef rekid augun i margt merkilegt, marga kosti og faa galla. Eg er atvinnulaus sem stendur og veldur thad mer sma ahyggjum en thad er ekki hlaupid ad thvi ad fa vinnu herna thar sem thad er 9% atvinnuleysi a svaedinu, eg tel mig hafa misst af agaetri vinnu vegna thess ad eg thurfti ad endurboka fund sem eg atti i byrjun februar en gat ekki maett a vegna thess ad eg thurfti ad vinna hja Heradsprent til 10 feb. Thegar eg maetti svo hingad var buid ad rada manneskju og var mer sagt ad their hefdu ekki gert rad fyrir ad eg kaemi ut aftur einhverra hluta vegna. Svona er thetta stundum, thad getur skipt mali ad standa vid sett loford, baedi ad standa vid setta fundi og starfslok!
Sidan eg kom hingad ut er medalhiti um -10 gradur celsius, mest for i -20!! Eg by a eyju og vatnid sem umlykur hana er 5 staersta vatn i Svithjod, thad er frosid og buid ad leggja vegi i allar attir a vatninu, serstakt og skemmtilegt. Vegirnir a isnum eru mjog breidir og thad er merkilega skemmtilegt ad taka handbremsubeygjur a veginum eins og gefur ad skilja!! Thessi stadur er alger vetrarparadis, margar skidabrekkur ut um allt, litil saet thorp, moooooooooorg tre og godur sveitamatur, verdur ekki mikid saenskara en thad held eg!
Thetta verdur ekki mikid lengra i bili, eins og er er eg ekki med neina tolvu heima og fer thvi reglulega a bokasafnid til ad athuga tolvupostinn, og nuna akvad eg ad skrifa thessa litlu faerslu til ad lata ykkur vita ad eg er a lifi. Eg er ordinn helviti oflugur i ad skrifa an islenskra stafa!

Laet heyra i mer seinna, stefni a ad kaupa tolvu um leid og eg er kominn med vinnu, tha verd eg duglegri ad blogga og jafnvel verdur haegt ad finna mig a msn af og til!

HEJ DÅ!
Andri


Posted at 03:11 am byAndritheodors
Comments (2)  

Jan 22, 2006
Jákvæður í dag?!

Í dag ætla ég að vera jákvæður í garð Egilsstaða! Held að það sé kominn tími á það. Þegar ég flutti hingað í nóv. 2004 þá var þetta akkurat það sem ég var að leita að, friður og ró, ekkert álag, vinna 8-5 og ekki söguna meir, nægur tími til að rækta sjálfan mig, slappa af og njóta þess að vera til. Ég hefði aldrei komið hingað nema ég hefði fengið þau laun sem ég fór fram á og flugið milli Egilsstaða og Reykjavíkur var vendipunkturinn, því tók ég vinnuna og flutti hingað. Fyrstu mánuðirnir hér voru góðir, ég var að vinna með frábærum gaur og skemmtum við okkur vel saman, oft aðeins of mikið miðað við þennan rólega stað (kom fyrir að þriðjudgar, miðvikudagar og fimmtudgar urðu fyrir barðinu á þynnku). Café KHB var þá spennandi pöbb, Valaskjálf var opið líka! hægt var að fara í pool og fá sér öllara, þetta leit vel út. Því miður þá fór þetta versnandi og í dag er KHB ekki pöbb heldur staður fyrir 2-5 hræður, allt karlmenn, sorglegar og einmanna hræður - þó svo ég sé stundum einmanna þá er ég ekki sorglegur og eyði frekar tíma mínum á föstudags- og laugardagskvöldum frekar fyrir framan tölvuna eða sjónvarpið (okok, ég er líka sorglegur, en ekki það örvæntingafullur að ég fari á krappið). Já, alveg rétt, jákvæður, humm ok. 10 jákvæðir hlutir við Egilsstaði, ekki í neinni sérstakri röð....
1. Útsýnið úr íbúðinni minni er stórkostlegt, fæ aldrei leið á því. Hér er mjög fallegt umhverfi.



2. Gamli kallinn sem býr við hliðina á mér er fínn, hress og er rosalega glaður í hvert sinn sem ég banka upp á hjá honum og fæ eitthvað lánað, t.a.m. fékk ég mjólk út í kaffið hjá honum fyrir nokkrum mínutum og hann leit út fyrir að vera hamingjusamur um tíma því hann fékk að tala við einhvern í dag.
3. Café Nielsen, fótbolti! Ef þessi pöbb/veitingastaður væri ekki hérna veit ég ekki hvað ég myndi gera. Stelpurnar sem vinna þar eru líka sætar og skemmtilegar.
4. Bón og Púst, bílaverkstæðið, fínir gaurar þar, redda öllu 1,2 og 3. Þjónustulund í hámarki og ódýrir líka!
5. Vinnan, já, vinnan. Þrátt fyrir að ég sé að hætta þá líkar mig ágætlega við vinnuna og ef það væri gaman utan vinnu þá gæti ég kannski búið hérna.
6. Það er flugvöllur hérna, ef ég væri alveg að farast þá gæti ég alltaf rölt þangað og tekið næstu vél í burtu.
7. Elvis, hundurinn sem ég passa stundum, besti vinur minn á Egilsstöðum þessa stundina.
8. Fín sundlaug og góður lyftingasalur.
9. Ef maður vill vera í friði þá getur maður það, efast um að nokkur myndi taka eftir því ef ég myndi hverfa í viku.
10. Fínn golfvöllur hér.

Sko mig, þetta var ekki svo erfitt... (reyndar var þetta mjög erfitt!)
Endilega kommentið ef ég hef gleymt einhverju... kannskið vitið þið um eitthvað sem ég veit ekki um. Nóg í bili...

Ríspekt!


Posted at 03:05 am byAndritheodors
Comments (4)  

Jan 11, 2006
Hvað er í gangi?

Já, svei mér þá ef ég er ekki farinn að skilja hvernig föngum á Hrauninu líður.... Ég held að yfirvöld ættu að fara að taka upp nýja refsingu í dómskerfinu - senda glæpamenn og annan óþjóðalýð á Egilsstaði. Ég lýk afplánun minni eftir 34 daga 4klst og 47 mín. Úff hvað það verður yndislegur dagur! Af mér er þetta helst að frétta, ég er latur að blogga, ég borða hafragraut í hádeginu, ég horfi á sjónvarpið, félagslífið mitt samanstendur af 60 persónum á msn, yfirleitt eru ekki nema helmingurinn online á hverjum tíma og enginn vill tala við mig... og já, ég er að fara að flytja til Svíþjóðar í febrúar.<BR>Fór til Maju minnar í desember, ferðin var hreint út sagt snilld! get ekki beðið að komast aftur út, eina sem mig vantar er vinna og þá er allt set eins og sagt er. Það getur samt verið hægara sagt en gert að fá vinnu við hönnun þarna úti þar sem ég tala ekki sænsku en ég er nokkuð bjartsýnn á að fá vinnu hjá einu dagblaði þarna úti, fæ að vita meira um það í lok janúar og ef ég verð duglegur (sem ég efast um að ég verði) þá læt ég ykkur, fáu lesendur, vita.
Lengra verður talan ekki í bili, eins og ég sagði þá er ég latur að blogga.

Pís Át.

A

P.s. vantar einhverjum dúndur kerru, Mitsubishi Colt, ekinn 125þ. geggjuð kerra og svínvirkar í þokkabót - flaug í gegnum skoðun og var valinn bíll ársins af starfsmönnum Malarvinnslunar á Egilsstöðum. 150þ kall á borðið.


Posted at 11:11 am byAndritheodors
Comments (2)  

Nov 1, 2005
Kitlíkitlíkitlíkitlíkitlí

Jæja, svo Kári vinur minn var að "kitla" mig. Þetta er víst að tröllríða öllu í bloggheimum og ætli maður verði ekki að sýna fólki hinar hliðarnar á manni.

Humm.........

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey!
1. Eiga hús við Miðjarðahafið eða íbúð... ok herbergi?
2. Fara í heimsreisu og heimsækja allar heimsálfur.
3. Fara á leik með United á Old Trafford.
4. Búa einhversstaðar annarsstaðar en á Íslandi lengur en í 5 ár.
5. Fara í fallhlífarstökk.
6. Reykja jónu á Jamaica með lókals.
7. Eignast hund.


Sjö hlutir sem ég get!
1. Kafað 25 metra.
2. Búið til heví gott grænmetislasagna.
3. Skrifað alveg ótrúlega rómantísk bréf.
4. Tekið hreingerningaköst og þrifið gjörsamlega allt í kringum mig á mettíma.
5. Get verið alveg rosalega latur að þrífa.
6. Tekið ákvarðanir þegar aðrir geta það ekki.
7. Náð fram því besta í öllum með því að koma fram við fólk með virðingu.

Sjö hlutir sem ég get alls ekki!
1. Drukkið heitt gin, mér verður illt við tilhugsunina.
2. Borðað hákarl að hætti íslendinga.
3. Hlustað á íslenskta popptónlist, Sálina, Sólina, Svörtum fötum etc....
4. Verið án peninga.
5. Æft samviskusamlega í lyftingasal lengur en í mánuð.
6. Borðað æluna úr sjálfum mér, hehe.
7. Spilað fótbolta að fullum krafti aftur útaf af helvítis bakinu mínu.

Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið.
1. Augun, gluggar sálarinnar.
2. Húmor.
3. Hæfni til að taka eigin ákvarðanir.
4. Brjóst, stór brjóst og flottur líkami. Ekki silikon, bara ekta!
5. Hreinskilni.
6. Opinn hugur gagnvart öllu og öllum.
7. Rómantík, þegar manni er komið a óvart.

Sjö frægir kvennmenn sem heilla

1. Maja Hörnberg, hefur leikið í einni mynd, soldið fræg!
2. Charlize Theron í Peter Sellers myndinni, ÚFF.
3. Nina Person, söngkona í Cardigans.
4. Halle Berry.
5. Ragnheiður Guðfinna, fræg? en flott!
6. Helena Bonham Carter.
7. Penelope Cruz.

Sjö orð eða setningar sem að ég nota mikið
1. fokkit.
2. Þetta reddast.
3. Shitturinn.
4. Heví.
5. Næs.
6. Nei.
7. Djöfulsins kjaftæði er þetta í þér maður.

Sjö hlutir sem að ég sé einmitt núna!
1. Síminn minn.
2. Myndavél.
3. Fjarstýringar.
4. Ketill.
5. Brauð.
6. Froskur með innbyggðum diskóljósum.
7. Dagskrá Austurland, ælæl.


Þetta var nú skemmtilegt, hahaha. Ég kitla Thorsten. Þetta er fínt verkefni í íslenskunáminu þínu, allt verður að vera á íslensku!
 

Posted at 02:03 pm byAndritheodors
Comments (6)  

Oct 28, 2005
AHHHHHH ÚTRÁS... Lesist með opnum huga og brosi í hjarta

Jæja, þá er ég mættur aftur, sumarið var heldur betur í viðburðaríkari kantinum, þó svo að veðrið hafi verið leiðinlegt 98% af þessum tíma. Ég er kominn með kjellingu, en eins og líklega flestir vita sem lesa þetta blogg, ef ég fæ einhverjar heimsóknir ennþá, þá er hún sænsk og heitir Maja. Ég talaði aðeins um hana í þarþarþarsþiðustu færslu sem var gerð fyrir löngu síðan. En núna er hún farin aftur til Svíþjóðar og ég sit nú einn og yfirgefinn á Egilsstöðum, sem er staður sem ég er farinn að líka frekar illa við. En á döfinni er ferð til Sverige, nánar tiltekið í desember, þar sem ég mun eyða 2 vikum yfir jólin í faðmi hennar:). Þangað til verð ég bara fullur og alltaf online á msn, því ég á enga vini á Egilsstöðum! Kári er fluttur í bæinn, eina sem vit er í, og staðgengill hans er Thorsten, þjóðverji, og reyni ég að spilla honum svolítið í vetur með því að draga hann á fótboltaleiki á Nielsen og detta í það á virkum dögum, eins og við Kári vorum svo góðir í að gera.hehe
Annars er ég búinn að sálgreina Egilsstaði og íbúa (ekki alla, en flesta) nokkuð vel. Upp til hópa er þessi staður sá menningasnauðasti staður sem ég hef nokkurn tíma búið á, og þá er Borgarnes líka tekið með (þar var a.m.k. billiard stofa, bíó og kaffihúsamenning, lítil, en var þó!) Hér á Egilsstöðum kappkostast fólk að vera sem einangraðast, horfa sem mest á sjónvarp og lifa sem viðburðasnauðasta lífi eins og hægt er. Því til sönnunar má taka fram að Valaskjálf er rekið af áhugalausu fólki sem hefur engan metnað til að halda úti einhverju skemmtilegu félagsstarfi, ég veit að það eru til pool borð hérna einhversstaðar og örugglega bíó sýningarvél. Krappið (Café KHB) er bara brandari, þreyttur brandari, undir lok ágúst auglýstu þeir vetraropnunartímann, opið var á fimmtudögum, föstudögum, laugardögum og sunnudögum, bara á kvöldin. Ég var ekkert voða sáttur við það, en það þýddi bara að ekkert kaffihús var í bænum nema Nielsen - eina félagslífið sem ég fæ er að heimsækja þann stað á laugardögum yfir fótboltaleikjum. Nú er Krappið (sem ber nafn með rentu) aðeins opið á föstudögum og laugardögum frá 20 - 03! Halló, hvar er hugmyndaflugið, metnaðurinn og peningagræðgin í fólkinu. Það er ekki nóg að auglýsa karaókí kvöld á hverju laugardagskvöldi og halda að staðurinn haldi sér! Komið með einhverjar nýjungar, sama hvað er, Jatsí keppni, spilakvöld, hópslagsmál, spilakvöld með slagsmálaívafi og kastað er teningum á meðan etc... búið til einhverjar samkomur! Nema hvað, ég hef ákveðið að klára minn vinnusamning og halda svo eitthvað annað, ekki misskilja mig, mér likar mjög vel við vinnuna, ég get bara ekki búið hér! og nota bene, það eru einstaklingar hér sem mér líkar ágætlega vel við, ég mun aldrei samþykkja það að vera andfélagslegur maður, ég nærist á félagslífi! En núna er ég líka bara í fáranlega fúlu skapi að mér langar að dissa einhvern. En ég veit ekki hvort einhver les þetta þannig að ég vill ekki fara í einhverjar persónulegar árásir. Thorsten og Ásta eru frábær, vinnan er fín and þats it.
Svo er hin hliðin, kannski er fólk bara hrætt við mig? Lít ég út fyrir að vera glæpamaður eða sést það á mér að ég kem frá Reykjavík og allir sem koma þaðan eða hafa búið þar (pælið í því, það er slatti af fólki sem hatar að fara til Reykjavíkur sem býr hérna) eru skrítnir. Er ég stimplaður hámenningarviti sem ekki er hægt að ræða við vegna þess ég er þrítugur karlmaður úr Reykjavík sem býr einn og er með sænskri skutlu sem býr úti í Svíþjóð og ég á krakka sem býr á Akranesi og ég hitti aðra hvora helgi, kannski vegna þess að ég er haldinn ólæknandi ævintýraþrá og vill helst ekki festast neins staðar? NEIHHHHHHHHHHIHI, þannig líferni er ekki eðlilegt, venjulegt líf fyrir þessu fólki er að alast uppí sveit, smala, éta slátur í öll mál, drekka mysu, leika sér með skeljar, fara út á vinnumarkaðinn 10 ára, ekki ferðast nema um fjórðunginn sinn, ALDREI að fara til útlanda, og fara sem sjaldnast til Reykjavíkur vegna þess að það er borg óttans (það stóð einu sinni í einhverju blaði þannig að það hlýtur að vera satt!). Nei takk, lifið "seif", aldrei að taka áhættu og ekki fara út á kvöldin, ekki hlusta á rokktónlist og kjósið Gunnar í Krossinum ef hann býður sig einhvern tímann fram sem forseti, já, það er sko maður sem kann að halda í gömul gildi! Talandi um trúarbrögð (Gunnsi hommafælni ofstækismaður sem er ekki enn kominn útúr skápnum sjálfur því mamma hans lamdi hann þegar hann var krakki) slúður, það eru hin heilögu trúarbrögð smáborgarans, á Egilsstöðum fer þetta út fyrir velsæmismörk hér eru örugglega allir áskrifandi að Séð og Heyrt og þegar Hér og Nú byrjaði þá hætti fólk að vinna, keyptu sér grenitré og héldu jólin snemma. Dagskráin, sorpritið sem ég geri í hverri viku er einnig stærsta málið á Austurlandi, ég get svo svarið það, á miðvikudögum hringir tugir manna til okkar og kvartar, "meeeee, af hverju er Dagskráin ekki komin heim til mín, ég þarf að fara að mjólka og ég er ekki búin/nn að lesa smáauglýsingarnar, ég kann ekki að mjólka nema ég lesi smáauglýsingarnaar fyrst." SVEITAFÓLK! HAHAHA, djöfull er gott að fá útrás. AHHH
Sjitt hvað þið haldið að ég sé að verða geðveikur, en ekki taka mark á neinu sem ég segi, ég er nefnilega geðveikur, geðveikur Reykvíkingur.... en þið vissuð það, ekki satt? Nei, það getur ekki verið, það eru ekki tölvumenning á Egilstöðum heldur, það er bara leikið sér með ull og svínslappir ef það er ekkert í imbanum. Þannig að þú lesandi góður, fellur ekki í þennan hóp, til hamingju.
Endilega kommentið, gott að vita ef einhver les þetta og ákveður að berja mig fyrir að hafa skoðanir, nei það getur ekki verið heldur því fólkið hér kann ekki að lesa því það fór aldrei í skóla, það var of busy að smala og búa til slátur. 




Posted at 02:20 pm byAndritheodors
Comments (3)  

Jul 2, 2005
Sumarbloggfrí

Ég er í bloggfríi eins og er og hafið þið án efa, mínir dyggu lesendur, tekið eftir því. En örvæntið ei, ég mun snúa aftur! eða eins og hvíthærða nornin sagði í ævintýrinu um formannskjör í alþýðuflokknum,  "minn tími mun koma".


Posted at 05:13 am byAndritheodors
Comment (1)  

May 20, 2005
Rúnkfrú Ísland 2005

Mér finnst það nokk merkilegt að á tímum jafnréttis og stigvaxandi feminisma að enn skuli vera hægt að finna stelpukindur til að taka þátt í mestu gripasýningu ársins, Rúnkfrú Íslands 2005, enn eina ferðina. Alltaf segja þessi grey það sama eftir hverja sýningu "þessi keppni er búin að gefa mér mjög mikið, ég er búin að eignast æðislegar vinkonur og mér finnst ég hafa þroskast alveg obboslega mikið, blablablabla". Þær, eins og svo margir aðrir sem eru fylgjendur þesskonar gripasýninga, eru algerlega blindir fyrir þeirri staðreynd eða lifa í afneitun um að þessi keppni er ekkert annað en dulbúin heimsmeistarakeppni aldinna rúnkperra úr vesturbænum sem stofnuðu klúbbinn sinn fyrir einhverjum 40 árum síðan og datt þessi snilldarlausn í hug, ahh fáum einhverjar ljóskur til að labba um í bikini fyrir framan okkur og sjáum hvað við höldum þetta lengi út.
En, eins kaldhæðnislega eins og það hljómar, hef ég lúmskt gaman af því að horfa á þessar gellur vappa um sviðið á bikini eins og hver annar karlmaður og annarhver kvennkyns feminismi... þannig að ég verð að segja SEKUR, og vonast til að fá tækifæri til að taka inngöngupróf í fyrrnefndan klúbb eftir ca. 40 ár, ég trúi ekki öðru en það verði enn til stelpur sem eru tilbúnar til að smeygja sér í bikiní fyrir gömlu kallana þá.
 

Posted at 03:45 pm byAndritheodors
Comments (2)  

May 13, 2005
Ekkert kjaftæði

Grípið útistólana, opnið rauðvínið, drullið ykkur út á svalir, kveikið upp í grillinu og hlustið á sumarið, það er komið. Næstu 3 mánuði verður bara hlustað á happyhappyjoyjoy tónlist.

Posted at 05:46 am byAndritheodors
Make a comment  

May 4, 2005
Ekkert að segja...

set bara inn ný lög. Ég er í rólegri kantinum þessa stundina... wonder why. Spila bara golf alla daga og vinn þess á milli, ekki mikið að ske. Ef þið eruð að fíla þetta þá endilega kommentið og ef þið viljið sjá eitthvað sérstakt í boði er aldrei að vita að ég eigi það.

Posted at 01:20 pm byAndritheodors
Comments (2)  

May 1, 2005
Lykillinn að hamingju felst í núinu.

Ég var að spjalla við vinkonu mína á föstudagskvöldið og vorum við að tala um hversu sorglegt það hvernig sumt fólk hefur þann einstaklega leiðinlega hæfileika að halda dagbók í hausnum á sér sem skráir aðeins niður leiðinleg, smá og einskisnýt atriði og notar þá svo gegn manni þegar maður á síst von á því. Þetta fólk er yfirleitt maki eða fyrrverandi maki þinn og er algerlega blint fyrir eigin göllum, sbr. þessum. Þess vegna heitir færsla dagsins þetta, þetta er mikil speki en á kannski ekki alltaf við eins og til dæmis í peningamálum, en er ekki sagt að peningar skapi hvort eð er ekki hamingjuna, það eru smáu jákvæðu hlutirnir sem skipta máli. Ég ætla ekki að taka dæmi um þennan galla þó svo ég hafi þónokkra reynslu af þeim, en vegna virðingar minnar og samúðar á þessu ógæfufólki sleppi ég því.
Yfir í annað, helgin var fín, kíkti á Krappið á föstudagskvöld sem er í raun ekki frásögu færandi nema hvað að mér var boðið í 25 ára afmæli hjá nágranna mínum á laugardagskvöldið þannig að þá var ljóst að áfengi yrði við hönd bæði föstudags- og laugardagskvöld þessarar helgar, sem er svosem ekkert nýtt hjá mér :) Kíkti í afmælið í gærkvöldi og það var bara mjög fínt, þetta var tvöfalt 25 ára afmæli hjá strák sem heitir Davíð og sænskri stelpu sem heitir Maja. Ég gaf  Davíð forláta fallegar servíettur og Maju grænar baunir í bláum hanska, vöktu þessar gjafir mikla hrifningu viðstaddra og fékk ég plús í kladdann hjá innfæddum fyrir frumlegheit, annars vita þau ekki að ég var inspíraður af listamanni sem kallar sig Dösty Bass Haze 2 the Face.
Annars er ég aðeins búinn að breyta fyrirkomulaginu á lögum færslunar og eins og þið sjáið hérna hægra megin er kominn listi yfir þau lög sem eru á servernum hjá mér, ég veit nefnilega að það er þónokkuð af fólki sem kemur hér til að tjekka á hvaða lag sé í boði. Enjoy, en hafið ekki hátt um þetta þar sem þetta er massamökk ólöglegt.
Respekt!
Andri


Posted at 06:49 am byAndritheodors
Comment (1)  


Next Page



   

<< December 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed